top of page

Á ákveðnu þroskastigi

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
2 hours ago
3 min read

Ég var komin á miðjan þrítugsaldur þegar ég áttaði mig á því að fólkið sem ég sá í kringum mig, og taldi hafa fullt sjálfstraust og vera með allt á hreinu, var líka að glíma við alls konar hluti.



Ég vissi auðvitað að ég væri ekki eina manneskjan sem ætti erfitt, en samt sá ég fólk sem mér fannst vera svo miklu öruggara í lífinu en ég var sjálf.


Það sem ég hef hins vegar verið að hugsa um undanfarið er að við erum ekki öll komin jafn langt í öllum hlutum. Við getum verið fullorðin að aldri, haft vinnu, borgað reikningana, eignast börn og staðið undir mikilli ábyrgð, en samt verið með hluta af okkur sem hefur ekki fengið að þroskast eins og hann hefði þurft.


Ég hef þurft að horfast í augu við þetta hjá sjálfri mér. Í sjaman-náminu mínu unnum við meðal annars með það sem hafði farið aflaga í uppvextinum, ekki bara það sem hafði gerst, heldur líka það sem hafði ekki gerst en átti að gerast.


Það opnaði fyrir mér ákveðinn skilning á sjálfri mér. Ég sá að það voru hlutir í mér sem voru fastir á ákveðnu stigi, ekki vegna þess að ég væri ekki fullorðin, heldur vegna þess að ákveðinn þroski hafði einfaldlega ekki átt sér stað á réttum tíma.


Það sem mér fannst áhugavert við að uppgötva þetta var að ég þurfti ekki að líta á það sem galla í mér. Ég gat lært það sem ég þurfti að læra, því við hættum ekki að þroskast þó við verðum fullorðin.


Ég hef þurft að læra að setja mörk, taka ábyrgð á eigin tilfinningum, segja hvað mér finnst, biðja um það sem ég þarf, þola að einhver verði ósáttur við mig og taka tillit til annarra án þess að hverfa sjálf. Þetta eru ekki hlutir sem ég fæddist með eða án, heldur færni sem ég hef þurft að æfa.


Ég held að þetta sé eitthvað sem við tölum ekki nógu mikið um. Við tölum mikið um kvíða, þunglyndi og aðra vanlíðan, en ekki alltaf um það að stundum getur fólk átt í erfiðleikum með lífið vegna þess að ákveðnir þroskaþættir hafa einfaldlega ekki náð að þróast.


Það þarf ekki alltaf að þýða að eitthvað sé að viðkomandi. Stundum vantar ákveðna færni: að hlusta á aðra, bíða, þola vonbrigði, taka höfnun, sjá að annað fólk hefur líka sínar þarfir og taka ábyrgð á eigin hlut. Að geta sagt „ég þarf hjálp“ án þess að ætlast til þess að einhver annar leysi allt fyrir mann.


Það er þarna sem ég sé muninn á því að vera fullorðinn að aldri og því að vera að verða fullorðinn í eigin lífi. Við getum öll verið með hluta af okkur sem eru yngri en aldurinn okkar gefur til kynna.


Ég hef verið þar og er enn að vinna í mínum hlutum. Ég hef þurft að foreldra sjálfa mig á ákveðnum sviðum, gefa mér það sem ég þurfti en fékk ekki og læra hluti sem hefði kannski verið gott að læra fyrr.


Það þýðir ekki að ég sé betri en einhver annar. Þvert á móti finnst mér auðveldara að horfa á sjálfa mig og aðra af mildi þegar ég veit að ég hef þurft að læra margt síðar á lífsleiðinni. Mér finnst það reyndar vera ein af björtustu uppgötvunum sem ég hef gert.


Við getum nefnilega lært það sem við lærðum ekki á sínum tíma. Við getum þroskast á fullorðinsárum. Við getum orðið betri í því að vera með öðru fólki, taka ábyrgð, setja mörk, hlusta, biðja um hjálp og taka tillit.


Ég held að það sé hluti af bata, ekki bara að líða betur, heldur að halda áfram að þroskast.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page