top of page
Guðný Guðmundsdóttir

Taktu pláss í tilverunni
Hugleiðingar og vangaveltur um sjálfsrækt, heilsu og andleg málefni
Heima: Welcome


Ekki er nú öll vitleysan eins
Ég sá svo fallegan regnboga á leiðinni í vinnuna um daginn og það var svo dásamlegt. Það var yndislegt að vera til, fannst mér. Það hefur nú heldur betur ekki alltaf verið þannig sem mér hefur liðið. Meirihluta ævinnar hefur mér fundist þetta líf frekar erfitt, svo erfitt að ég hef varið miklum tíma í að reyna að skilja hvað ég væri eiginlega að gera hérna og út á hvað þessi alheimur gengur. Ég er komin að niðurstöðu; ég hef ekki hugmynd. Og það sem meira er, þá er mér greini

Guðný Guðmundsdóttir
5 days ago2 min read


Þegar maður veit ekki að það sé til önnur leið
Stundum held ég að það erfiðasta við að átta sig á eigin mynstrum sé að maður veit ekki endilega að þau séu mynstur. Ef maður hefur alla ævi verið vanur að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst, að laga sig að öðrum, að þurfa ekki of mikið, að vera stöðugt á varðbergi eða að loka á eigin tilfinningar, þá getur það einfaldlega virst vera eðlilegt ástand. Það er frekar algengt að hugsa með sér, að svona sé ég bara, en hvað ef það er ekki alveg rétt? Hvað ef þetta er eitthvað s

Guðný Guðmundsdóttir
Sep 32 min read


Hvernig getum við haft áhrif?
Við mannfólkið eyðum ótrúlega mikilli orku í að reyna að breyta fólki, aðstæðum, samfélaginu og heiminum sjálfum. Ég þekki það vel af eigin raun, en ég hef búið yfir ríkri þörf fyrir að líta út á við og sjá hluti í umhverfi mínu sem mér finnst ég þurfa að laga til þess að líða vel í eigin skinni. Fyrir meira en tíu árum síðan gerði ég samt uppgötvun sem hjálpaði mér að sjá þessa tilhneigingu frá öðru sjónarhorni. Ég sat námskeið um meðvirkni þar sem kennarinn benti okkur neme

Guðný Guðmundsdóttir
Sep 22 min read


Vinnan sem fer fram hið innra
Mín innri vinna hefur að miklu leyti farið fram ein með sjálfri mér. Ég hef tekið alls konar námskeið, farið í heilun, lesið bækur og talað við fólk. En sú vinna sem skiptir mestu máli hefur farið fram í einrúmi, þegar ég hef þurft að sitja með sjálfri mér og tilfinningum mínum í stað þess að hlaupa frá þeim, deyfa þær eða reyna að útskýra þær í burtu. Þegar maður sest niður í hugleiðslu heldur maður kannski að maður sé að fara að kyrra hugann. En þegar ekkert er til að trufl

Guðný Guðmundsdóttir
Aug 233 min read


Það er ekki allt mitt að bera
Ég hef tekið eftir ákveðinni togstreitu innra með mér nýlega. Ekki vegna þess að eitthvað sé endilega að, heldur vegna þess að ég finn fyrir kunnuglegri hvöt til þess að grípa inn í. Ef eitthvað er óljóst langar mig að skapa skýrleika. Ef verkefni virðist vera að stranda langar mig að ýta því af stað. Ef einhver tekur ekki ábyrgð á sínu finn ég hvernig hluti af mér vill stíga inn og fylla upp í tómarúmið. Ég er að sjá það núna að ástæðan fyrir því að ég finn fyrir þessari til

Guðný Guðmundsdóttir
Aug 202 min read


Daglegt líf sem andleg vegferð
Ég ákvað um helgina að rölta í kringum Elliðavatn í góða veðrinu, en þegar ég var komin hálfan hring settist ég niður til þess að njóta þess að sitja í sólinni og hlusta á náttúruna. Nema hvað, að ég var þrisvar sinnum trufluð af dróna sem eyðilagði svolítið fyrir mér þessa dásamlegu stund, þar sem hljóðið í drónanum var svo augljóslega ekki af náttúrunnar hendi. Ég hugsaði um myndina Eat, pray, love, þar sem Elizabeth var komin til Indlands í hugleiðslusetur og fékk til að m

Guðný Guðmundsdóttir
Aug 162 min read


Að velja viðbragð í stað þess að bregðast við
Undanfarið hef ég tekið eftir hlutum sem hefðu áður farið algjörlega fram hjá mér. Ég tók til dæmis eftir því um daginn að maginn á mér fór allt í einu að gaula. Gamla sjálfvirka viðbragðið sagði mér að standa upp og fá mér eitthvað að borða, en í þetta sinn stoppaði ég í eitt augnablik og spurði sjálfa mig hvort ég væri í raun svöng? Það kom í ljós að svarið var nei, að maginn væri einfaldlega að vinna vinnuna sína, að líkaminn var virkur, en ekki að biðja mig um mat. Þetta

Guðný Guðmundsdóttir
Jul 152 min read


Listin að horfast í augu við veruleikann
Hvenær verður vonin að hindrun? Við tölum oft um von eins og hún sé alltaf góð. Að við eigum aldrei að gefast upp, heldur að við eigum alltaf að halda í vonina. En undanfarið hef ég verið að velta fyrir mér annarri spurningu. Hvenær verður vonin að því sem heldur okkur föstum? Hvenær verður hún að ástæðu fyrir því að við horfum ekki skýrt á það sem er? Kannski er erfiðasta form visku ekki að læra að vona. Kannski er það að vita hvenær við eigum að hætta að bíða eftir því að v

Guðný Guðmundsdóttir
Jul 132 min read


Þegar vakningin mætir lífinu
Það sem kom mér mest á óvart eftir að hafa gengið í gegnum andlegt ferðalag og gert upplifanir sem margir andlegir leiðbeinendur hafa lýst, var að það skyldi ekki fjarlægja mig frá hinu mannlega lífi, heldur draga mig enn dýpra inn í það. Ég hef skrifað um það undanfarið að andleg vakning hafi ekki reynst lausn á lífi mínu í heild sinni. Ég vakna enn stundum þreytt á morgnana, borga reikninga, elda mat, tek erfiðar ákvarðanir og upplifi jafnvel einmanaleika eða óvissu. Til að

Guðný Guðmundsdóttir
May 273 min read


Andleg vakning og hið venjulega líf
Ég var aldrei að leita að andlegri vakningu. Ég var einfaldlega að reyna að skilja hvað væri að gerast innra með mér. Það kom mér á óvart þegar ég fór að lesa um það sem kallað er vakning og áttaði mig á að það sem ég hélt að væri eitthvað óljóst og persónulegt var í raun lýst nákvæmlega þar. En það sem kom mér enn meira á óvart var að vakning virtist ekki leiða mann eitthvert æðra eða stærra heldur þvert á móti aftur hingað, inn í hið venjulega líf. Kennarar eins og Adyashan

Guðný Guðmundsdóttir
Mar 33 min read


Endirinn á leitinni með kaffiblett á buxunum
Í febrúar fór ég á eins dags sjaman vinnustofu með fyrrverandi kennaranum mínum og hópnum sem ég lærði með. Þar átti sér stað djúp heilunarvinna sem einkenndist af mikilli losun, orku og hreyfingu. Um kvöldið og daginn eftir upplifði ég hins vegar ákveðna tortryggni gagnvart öllu sem ég hef verið að gera í andlegum málefnum síðustu fimmtán árin. Það var eins og einhver rödd inni í mér segði: „Hvað ertu eiginlega búin að vera að gera? Var þetta bara tímasóun?“ Það var ekki þan

Guðný Guðmundsdóttir
Mar 22 min read


Áfallavinna og úrvinnsla
Eins og ég hef áður skrifað um hef ég nýlega upplifað þá breytingu að mér líður ekki lengur eins og ég sé stöðugt að ganga á móti vindi. Það er ekki þannig að allt sé orðið auðvelt, heldur að innri mótstaðan sé minni. Eftir að hafa aðlagast þessum nýja veruleika hef ég verið forvitin um að skilja hvað varð til þess að ég náði loksins þessum stað. Ég trúi ekki að það hafi verið ein aðferð eða eitt augnablik, heldur langt ferli sem hefur spannað mörg ár. Samtöl, meðferð, líkams

Guðný Guðmundsdóttir
Mar 23 min read


Þegar lífið hættir að vera upp á móti
Undanfarna daga hef ég upplifað eitthvað sem er erfitt að lýsa án þess að það hljómi ýkt. Það er ekkert stórkostlegt eða dramatískt, en munurinn er samt mikill. Í mörg ár hefur lífið að einhverju leyti liðið eins og ég væri að ýta stórum steini upp brekku. Ekki endilega í augljósri kreppu, ekki stöðugt í miklu álagi, en undirliggjandi tilfinning var samt sú að hlutirnir kostuðu mig meira en þeir ættu að gera. Venjulegur dagur gat skilið mig eftir í þreytu sem var meiri en eðl

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 272 min read


Þegar maður hættir að þurfa toppa til að finna að maður lifir
Ég hef tekið eftir því að eitthvað er að breytast í mér undanfarið. Það sem hefur breyst er þetta: ég virðist ekki lengur þurfa sterkar upplifanir, toppa eða á einhverju sérstöku að halda til þess að finna fyrir lífi, merkingu eða tengingu. Í langan tíma tengdist líðan mín – og jafnvel sjálfsmynd – því að finna eitthvað hvort sem það fól í sér góða stemningu, sterka tilfinningu, upplifun sem rýfur hversdaginn í formi matar, drykkja, skemmtunar, áætlana eða ferðalaga. Ekki ve

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 252 min read


Að styðja taugakerfið án andlegs orðaforða
Það er mikið talað um mikilvægi þess að jarðtengja sig, opna hjartað eða hækka tíðnina þegar kemur að andlegum málefnum. Fyrir suma hjálpar þessi orðræða, en fyrir aðra getur hún verið ruglandi, fjarlæg eða jafnvel valdið meiri spennu. Ég hef sjálf upplifað að orð skipta máli. Ekki bara hvað þau þýða, heldur hvernig líkaminn bregst við þeim. Stundum hef ég fundið fyrir pressu þegar mér var sagt að ég þyrfti að vera meira jarðtengd, rólegri eða vera í annarri eða betri orku, á

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 253 min read


Að lifa með opið hjarta
Hvernig lifir maður með opið hjarta? Þessi spurning hefur fylgt mér, sérstaklega eftir að ég fór að finna varnirnar mínar mýkjast. Það er eins og eitthvað innra með mér hafi opnast, sem birtist mér í auknu rými. Tvær bækur hafa hjálpað mér að skilja þetta ferli betur; The Untethered Soul eftir Michael Singer og The End of Your World eftir Adyashanti. Michael Singer talar um opið hjarta sem daglega iðkun. Ekki sem hugmynd eða andlegt markmið, heldur sem einfalt val, aftur og

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 252 min read


Þegar tungumálið sjálft verður hindrun
Eitt af því sem ég hef orðið sífellt meðvitaðri um eftir mörg ár af sjálfsvinnu er hversu miklu máli það skiptir hvernig hlutirnir eru orðaðir þegar kemur að því að gefa ráðleggingar. Flestir meina vel og gefa ráð sem byggja á raunverulegri reynslu, innsýn og einlægri löngun til að hjálpa. Engu að síður man ég eftir mörgum augnablikum þar sem mér leið eins og verið væri að skamma mig frekar en hjálpa þegar mér voru gefin ráð eins og að ég þyrfti að jarðtengja mig, hækka tíðni

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 232 min read


Að lifa óvarin
Fyrst eftir að ég upplifði eininguna, það að ég væri ekki aðskilin lífinu heldur hluti af því sjálfu, tók við tímabil sem var bæði dásamlegt og ruglingslegt. Það fyrsta sem ég fann var djúp gleði yfir því að vera á lífi. Það var eins og heimurinn hefði opnast á ný eða kannski eins og ég væri loksins farin að sjá hann með öðrum augum. Ég var svo yfir mig spennt að mig langaði stundum að mála allan heiminn. Ég var svo mikið hér og nú að ég átti stundum erfitt með að muna hvaða

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 202 min read


Vakning gerir mann ekki sjálfkrafa betri
Mig langar að halda áfram umræðunni um andlega vakningu og nefna eitthvað sem mér finnst mikilvægt að segja upphátt: andleg vakning gerir mann ekki sjálfkrafa að betri manneskju. Þetta er eitthvað sem ég hef velt fyrir mér í mörg ár. Ég man til dæmis eftir því að hafa heyrt sögur af fyrstu búddísku munkunum sem komu til Vesturlanda og stóðu allt í einu frammi fyrir freistingum og aðstæðum sem þeir höfðu ekki áður þurft að takast á við. Ég horfði líka á heimildarmyndina um Osh

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 192 min read


Vakning er ekki lausn á mannlegu lífi
Eitt af því sem mér finnst mikilvægt að segja, sérstaklega eftir að hafa skrifað um andlega vakningu, er að hún er ekki lausn á mannlegu lífi. Andleg vakning leysir ekki líkamann undan veikindum, þreytu eða verkjum. Hún fjarlægir ekki kulda, myrkur eða þá staðreynd að sumir dagar eru einfaldlega erfiðir. Hún tryggir ekki að maður vakni hress á morgnana eða sé í góðum gír allt árið um kring. Hún átti heldur aldrei að gera það. Það sem vakning breytir er ekki lífið sjálft, held

Guðný Guðmundsdóttir
Feb 182 min read
Heima: Blog2
Heima: Contact
bottom of page