top of page

Að koma heim til Jarðar

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
11 hours ago
2 min read

Eins og ég hef margoft rætt og kemur fram í skrifum mínum, hef ég alla tíð verið að reyna að skilja veröldina betur.



Þetta sumar er ég búin að vera á heilmiklu heilunarferðalagi, en á því ferðalagi hef ég nýtt mér hugvíkkandi efni með meðferðaraðilum.


Síðustu tvö skipti sem ég hef farið fékk ég skilaboð sem ég átti ekki von á, sem snéru að því að það er ekki mitt að skilja hvernig alheimurinn virkar. Það komi mér satt best að segja ekki við.


Himnarnir munu sem sé ekki opnast á einhverjum tímapunkti og ég mun aldrei, sem þessi manneskja sem ég er hérna á þessari jörð, fá að vita nákvæmlega út á hvað þetta allt saman gengur.


Ég er nefnilega ekki við stjórnvölinn hérna, þá á ég við ekki sem þessi hugur, persónuleiki eða egó. Ég tek á móti upplýsingum sem berast, en ég á ekki að reyna að stjórnast í því sem á sér stað.


Ég fæ skilaboð til mín sem hugsanir, tilfinningar, sem innsæi, sem löngun til þess að fara hingað eða þangað, gera þetta eða hitt. Draumar mínar og þrár eru skilaboðin og ég á að fara að hlusta loksins og fylgja þeim eftir.


Það sem mér er ætlað að vera, er persónuleikinn sem ég er í þessu lífi, í þessum líkama, hér og nú. Ég skapa með því að vera einskonar millistykki við eitthvað annað, eitthvað sem er handanheims, en ég bý það til hérna á jörðinni, í efninu.


Það þurfti að rasskella mig rækilega í tveimur ferðalögum til þess að ég tæki þessi skilaboð til mín og færi að lifa eftir þeim. Nú ætla ég að fara að gera það sem mig langar og njóta þess að vera hérna á þessari jörð á meðan ég er hérna.


Ég byrjaði á því að fara að sjá skvísumynd í bíó sem mig langaði að sjá. Ég fór klukkan fjögur um daginn en í salnum voru ég og tvær eldri konur. Ég horfði á mynd um galdra, töfra, nornir, ást og fjölskyldu, og grét eins mikið og ég vildi sem truflaði engan, sem var ótrúlega gott.


Ég keypti mér síðan miða á Celine Dion í París á næsta ári með vinkonu minni. Að sjá Celine Dion á tónleikum er eitt af því fáa sem mig langar virkilega að gera um ævina – það fara í Jane Austen skoðunarferð á Englandi.  Ég er líka flutt inn í fyrstu íbúðina mína sem ég á alveg sjálf (með bankanum, það er að segja).


Ég hef eytt ansi mörgum árum í að reyna að skilja hvað þetta líf gengur út á, en kannski þarf ég ekki að komast að því. Kannski má ég bara vera hérna, langa í eitthvað, elta það sem gleður mig og sjá hvað gerist.


Áfram gakk.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page