top of page

Hvíldin kemur fyrst

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
2 hours ago
2 min read

Ég hef verið að uppgötva eitthvað sem hefði áður hljómað næstum óábyrgt í mínum eyrum; að ég megi hvíla mig þó svo að öllum verkefnum sé ekki lokið.



Í mörg ár lifði ég með þá tilfinningu að ég þyrfti alltaf að vera skrefi á undan; að hugsa meira, skipuleggja betur, laga það sem væri að. Ef ég slakaði of mikið á, myndi eitthvað fara úrskeiðis.


Nú þegar taugakerfið mitt er að róast, finn ég að eitthvað er að breytast innra með mér. Það er skrítin tilfinning því þegar maður hefur vanist spennu verður róin næstum ókunnug. Líkaminn brást fyrst við með þreytu, verkjum og tilfinningu um að eitthvað væri að losna.


Á sama tíma finn ég að mig langar ekki lengur að lifa í umhverfi þar sem allt þarf alltaf að vera betra. Ég vil eiga hæga morgna. Ég vil drekka kaffið mitt í ró. Ég vil lesa bók áður en ég fer að hugsa um verkefnalistann. Ég vil leyfa helgunum mínum að byrja hægt.


Það merkilega er að ég held að þetta geri mig ekki síður duglega, heldur þvert á móti.


Þegar ég leyfi mér að hvílast fæ ég löngun til að taka til. Mig langar að hugsa um heimilið mitt. Mig langar að elda góðan mat. Ekki vegna þess að ég „ætti“ að gera það heldur vegna þess að ég hef orku til þess.


Ég man eftir því að þegar ég var yngri gat ég auðveldlega sofið fram undir hádegi á laugardegi. Þegar ég fór svo loksins á fætur, var ég með samviskubit yfir því, svo ég fór að taka til. En það sem ég sé núna er að það var ekki vegna samviskubitsins, heldur vegna þess að hvíldin veitti mér orku til þess að takast á við verkefni dagsins.


Kannski höfum við ruglað þessu saman. Við höldum að hvíld sé verðlaun fyrir dugnað, en kannski er hvíldin það sem gerir dugnaðinn yfirhöfuð mögulegan.


Það er líka eitthvað annað sem hefur orðið mér til hugsunar, sem er að við lifum oft eins og allt velti á okkur, eins og við þurfum stöðugt að ýta lífinu áfram. En sólin rís á hverjum morgni án þess að ég geri neitt og hún sest á hverju kvöldi án þess að ég hafi skipulagt það.


Ég þarf ekki að minna hjartað mitt á að slá eða lungunum að anda. Það er svo margt í lífinu sem gerist af sjálfu sér, sem þýðir að lífið sjálft er kannski ekki vandamálið, heldur hugmyndin um að ég verði stöðugt að stjórna því.


Ég held að ég sé ekki að verða löt. Ég held að ég sé að læra að treysta. Ég treysti því að það sé nóg að ég sé ég, og að allt hitt muni blessist á einhvern undarlegan hátt, jafnvel án minnar aðkomu.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page