top of page

Að sitja með því sem kemur upp

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
3 hours ago
2 min read

Það kemur fólki gjarnan á óvart þegar það byrjar í sjálfsvinnu, hvort sem það felur í sér að vinna með meðferðaraðila eða setjast niður í hugleiðslu, að það sem kemur upp á yfirborðið eru oft sársaukafullar tilfinningar.



Fyrir manneskju sem er að leita sér hjálpar eða hugleiða til að líða betur getur þetta verið töluvert sjokk. Þegar við byrjum að líta inn á við opnum við á alls konar hluti sem við höfum geymt innra með okkur, jafnvel lengi, og höfum ekki viljað eða getað horfst í augu við.


Það sem ég hef verið að læra er að við þurfum ekki alltaf að gera eitthvað við það sem kemur upp þegar við setjumst niður með sjálfum okkur.


Þegar tilfinningar eins og sorg, ótti, reiði, skömm eða einmanaleiki birtast getur fyrsta viðbragðið verið að reyna að komast undan þeim. Við reynum að skilja þær, finna út hvaðan þær koma, laga þær eða hugsa okkur í gegnum þær. Við leitum að lausn, jafnvel þegar við vitum ekki alveg hvað þarf að leysa.


Það eru til margar leiðir til sjálfsvinnu, svo sem IFS, opið samtal, jafningjastuðningur og líkamsvinna. Þær hafa ólíkar áherslur og nota ólíkan orðaforða.


En stundum finnst mér eins og undir þessu öllu sé eitthvað mjög einfalt. Að við þurfum að geta verið með því sem er. Það þurfi ekki alltaf að tala, greina eða laga. Stundum þurfum við bara að sitja.


Kannski er þetta líka hluti af því sem hugleiðsla hefur kennt fólki í þúsundir ára. Við setjumst niður og tökum eftir því sem kemur upp. Hugsunum, tilfinningum, óþægindum og lönguninni til að flýja. Við tökum eftir þessu og komum aftur að því að vera hér, aftur og aftur.


Það er hægt að fá hjálp. Aðrir geta kennt okkur leiðir, gefið okkur orð yfir það sem við upplifum og hjálpað okkur að sjá það sem við eigum erfitt með að sjá sjálf. Þeir geta líka setið með okkur þegar okkur líður illa.


En þeir geta ekki setið með sársaukanum okkar fyrir okkur. Það er eitthvað sem við þurfum sjálf að læra að gera.


Kannski hefst hluti af vinnunni einmitt þar. Ekki þegar við finnum fullkomnu aðferðina til að losna við það sem við finnum, heldur þegar við getum verið með því nógu lengi án þess að þurfa strax að breyta því.


Það er ekki alltaf auðvelt, en kannski þurfum við heldur ekki alltaf að losna undan því sem við finnum. Kannski þurfum við stundum bara að læra að vera með okkur sjálfum í því. Það sem vill gerast í kjölfarið, er að það sleppir tökunum af okkur án þess að við gerum neitt.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page