Ekki er nú öll vitleysan eins

Ég sá svo fallegan regnboga á leiðinni í vinnuna um daginn og það var svo dásamlegt. Það var yndislegt að vera til, fannst mér.

Það hefur nú heldur betur ekki alltaf verið þannig sem mér hefur liðið. Meirihluta ævinnar hefur mér fundist þetta líf frekar erfitt, svo erfitt að ég hef varið miklum tíma í að reyna að skilja hvað ég væri eiginlega að gera hérna og út á hvað þessi alheimur gengur.
Ég er komin að niðurstöðu; ég hef ekki hugmynd.
Og það sem meira er, þá er mér greinilega ekki ætlað að vita það. Ég veit ekki hvaðan ég kom, ég veit ekki til hvers, en hér er ég nú samt.
Ég hef lengi haldið að ef ég bara skildi nógu mikið, ynni nógu mikið í sjálfri mér og kæmist nógu langt í þessari leit, þá myndi eitthvað að lokum smella. Þá myndi ég skilja hvernig þetta allt saman virkar. Ég myndi vita hver ég væri og af hverju ég væri hér.
En kannski er það ekki þannig. Kannski er lífið ekki ráðgáta sem mér er ætlað að leysa. Og ef svo er, þá get ég alveg eins haft gaman af því að vera hérna.
Ég held meira að segja að ég sé farin að vilja það.
Eftir öll árin sem ég hef eytt í að reyna að skilja lífið hef ég komist að þeirri svolítið undarlegu niðurstöðu að kannski er ekkert sérstakt svar sem bíður mín. Kannski mun ég aldrei fá að sjá heildarmyndina. Kannski mun ég aldrei skilja af hverju sumt gerist og annað ekki.
Og það er allt í lagi. Það er eiginlega svolítið frelsandi. Því ef ég þarf ekki að skilja þetta allt saman get ég farið að beina athyglinni að öðru.
Hvernig langar mig að hafa það á meðan ég er hér? Hvað finnst mér skemmtilegt? Hvern langar mig að hitta? Hvað langar mig að sjá? Hvað langar mig að læra? Hvað langar mig að skapa? Hvernig langar mig að elska?
Hvernig langar mig að eyða þessum dýrmæta, undarlega tíma sem ég fæ hér?
Kannski er það þetta sem ég hef verið að læra undanfarið. Að hætta smám saman að leita að einhverju handan lífsins og fara að taka eftir lífinu sjálfu.
Regnboganum á leiðinni í vinnuna, kaffibollanum á morgnana, fólkinu sem mér þykir vænt um, tónlist sem lætur mig langa að dansa, bíómynd sem fær mig til að gráta, góðum samtölum, hlátri og ást.
Og öllu þessu sem virðist svo ómerkilegt þegar maður er upptekinn af því að reyna að finna út úr tilverunni, en er kannski einmitt það sem tilveran er.
Kannski á ég ekki að vita hvaðan ég kom, hvað ég er að gera hérna eða hvert ég mun fara.
En ég veit að ég er hérna núna og ég býst við að ég geti þá alveg eins haft gaman af þessu.



Comments