top of page

Hvernig getum við haft áhrif?

  • Writer: Guðný Guðmundsdóttir
    Guðný Guðmundsdóttir
  • 3 days ago
  • 2 min read

Við mannfólkið eyðum ótrúlega mikilli orku í að reyna að breyta fólki, aðstæðum, samfélaginu og heiminum sjálfum.



Ég þekki það vel af eigin raun, en ég hef búið yfir ríkri þörf fyrir að líta út á við og sjá hluti í umhverfi mínu sem mér finnst ég þurfa að laga til þess að líða vel í eigin skinni.


Fyrir meira en tíu árum síðan gerði ég samt uppgötvun sem hjálpaði mér að sjá þessa tilhneigingu frá öðru sjónarhorni. Ég sat námskeið um meðvirkni þar sem kennarinn benti okkur nemendunum á hversu erfitt það er að breyta eigin hegðun og venjum og bauð okkur að ímynda okkur hversu erfitt það væri þá að breyta annarri manneskju.


Þessi ábending hjálpaði mér að skilja að ég gæti ekki stjórnað öðru fólki, enda var það aldrei mitt hlutverk, heldur að verkefni mitt væri fólgið í því að skoða sjálfa mig, mínar hugsanir, tilfinningar og viðhorf.


Við stjórnum nefnilega ekki öðru fólki, veðrinu, umferðinni, fréttunum, stjórnmálunum eða stöðu heimsins, en við stjórnum því hins vegar hvernig við mætum því sem gerist.


Það þýðir ekki að ytri aðstæður hafi ekki áhrif á okkur, því lífið færir okkur alls konar verkefni, en einhvers staðar á milli þess sem gerist og þess hvernig við bregðumst við liggur ábyrgð okkar.


Mín reynsla er að minnsta kosti sú að sama hvaða breytingar ég geri, þá fylgi ég sjálf með. Ég get skipt um vinnu, farið í nám, flutt eða breytt einhverju varðandi sambönd mín, en sama hvað ég geri tek ég mynstrin mín með; óttann, viðhorfin, varnarviðbrögðin, hugsanirnar og venjurnar.


Það getur verið auðveldara að breyta umhverfinu en að horfast í augu við það sem gerist innra með manni og auðveldara að finna vandamálið hjá öðrum en að spyrja sig hvað maður sjálfur á þátt í.


Það er kannski það erfiðasta við innri vinnu: að komast að því að maður er ekki undanskilinn.


Ég get nefnilega séð mynstur hjá öðrum og samt verið blind á mín eigin. Ég get haft mikla innsýn og samt notað hana til að forðast eitthvað sem mér finnst óþægilegt. Ég get séð nákvæmlega hvað annar einstaklingur „þarf að vinna í“ og samt átt erfitt með að sjá hvað ég sjálf þarf að gera.


Þess vegna held ég að innri vinna snúist ekki svo mikið um að verða betri manneskja, heldur frekar um að verða heiðarlegri. Að geta horft á sjálfa sig og sagt: Þetta er það sem ég finn og þetta er það sem ég óttast. Þetta er það sem ég geri til að forðast það og þetta er það sem ég get valið að gera öðruvísi.


Það er þar sem ábyrgðin mín liggur, ekki í því að láta annað fólk breytast eða fá heiminn til að haga sér eins og ég vil, heldur í því að skoða hvernig ég sjálf mæti heiminum.


Það er kannski einmitt þannig sem við höfum mest áhrif. Við þurfum ekki að hætta að vilja gera heiminn að betri stað, við þurfum bara að muna hvar áhrif okkar og ábyrgð byrja.


Hjá okkur sjálfum.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page