Aukin geta og meira rými

Updated: Oct 14
Ég hef verið að velta fyrir mér enska hugtakinu capacity, í þeirri merkingu að hafa getu eða rými til þess að takast á við allt það sem lífið hefur upp á að bjóða.

Þegar ég lít til baka sé ég að ég hef breyst mikið á þessum tíma sem ég hef verið í bataferli.
Áður hafði ég litla orku og jafnvel einföld verkefni í hversdagslífinu gátu reynst mér erfið. Í dag geri ég ekki endilega minna, en mér finnst ég geta tekist á við meira.
Ég finn muninn á mörgum sviðum. Ég get fundið fyrir sorg og samt haldið áfram með daginn. Ég get upplifað óvissu án þess að þurfa strax að finna lausn. Ég treysti mér betur til að taka ákvarðanir, jafnvel þótt ég viti ekki fyrirfram hvernig þær muni fara.
Ég þarf heldur ekki lengur að hafa jafn mikla stjórn á aðstæðum eða finna að ég þurfi að laga allt sem miður fer. Ég get leyft fleiru að vera eins og það er.
Ég tók ekki eftir þessari breytingu frá degi til dags. En þegar ég lít til baka sé ég að ég hef meiri orku, meira sjálfstraust og meira rými fyrir lífið. Því bataferlið snýst ekki bara um að geta tekist betur á við erfiðleika, heldur líka um að hafa orku og getu fyrir það sem er jákvætt og gott.
Að geta gert meira af því sem okkur langar til, upplifað meira, kynnst fólki, prófað nýja hluti og leyft okkur að njóta. Stundum höfum við einfaldlega ekki mikið rými fyrir neitt af þessu vegna þess að við erum upptekin við að komast í gegnum daginn og höfum litla orku umfram það.
Þegar getan eykst getur lífið því orðið stærra. Ekki endilega vegna þess að aðstæður okkar breytast, heldur vegna þess að við höfum meira rými til að taka þátt í því sem er í boði og sækjast eftir því sem okkur langar í.
Kannski snýst bati ekki endilega um að líða alltaf betur eða upplifa minna. Kannski snýst hann líka um að geta tekið á móti meiru af lífinu, bæði því góða og því erfiða, án þess að það kosti mann jafn mikið og áður.
Hluti af bata getur því falist í að geta gert og upplifað meira. Meiri gleði. Meiri sorg. Meiri ábyrgð. Meiri óvissu. Meiri tengsl. Fleiri upplifanir. Meira líf.
Innri vinna breytir ekki endilega því sem lífið færir okkur, en hún getur aukið rýmið sem við höfum fyrir það. Við getum fengið meiri orku til að gera það sem okkur langar, meiri áhuga á að prófa eitthvað nýtt og meira rými fyrir bæði gleði og tengsl.
Hversu mikið rými hefur þú fyrir lífið eins og það er núna? Og hvað gætirðu gert – eða hvað myndir þú velja að gera – ef það rými ykist?



Comments