Dansinn á milli yin og yang

Ég hef verið svo lengi að vinna með það sem hefur verið erfitt innra með mér að lengi vel snerist ferlið aðallega um að losa; að leyfa tilfinningum að koma upp, finna þær og hætta að vera hrædd við þær.

Nýlega fór ég að taka eftir því að það var ekki bara það erfiða sem var að koma upp, það var líka eitthvað annað – gleði, löngun, sköpun og forvitni. Mig fór að langa til þess að dansa, hlusta á tónlist, tengjast öðrum, tala og hlusta, búa eitthvað til.
Um daginn kom meira að segja upp í mér þessi undarlega löngun til að vera listamaður sem málar langt fram á nótt, hlær hátt og dansar berfættur um stofuna. Ég hef aldrei málað, en ég held að þessi tilfinning hafi ekki snúist um að mála, heldur að lifa.
Ég hugsa um þetta núna sem sjálfa kvenorkuna, ekki á þann hátt að konur séu tilfinningaríkar og karlar skynsamir, heldur er ég að tala um um orku eða eiginleika sem við höfum öll aðgang að, óháð því hvers kyns við erum.
Það sem ég kalla kvenorku er til dæmis tilfinning, sköpun, móttaka, innsæi, löngun, hreyfing, leikur og tjáning. Svo er til önnur orka sem við getum kallað karlorku, en hún tengist meira uppbyggingu, stefnu, mörkum, ákvörðunum, stöðugleika og getu til að halda utan um það sem er að gerast.
Ég held að við þurfum bæði vegna þess að lífskraftur án forms getur orðið yfirþyrmandi, á meðan form án lífskraftar getur orðið stíft og líflaust.
Ég held að þetta sé ástæðan fyrir því að myndin af „brjálaða listamanninum“ hefur alltaf verið dálítið tvíbent fyrir mér. Það er eitthvað heillandi við manneskju sem leyfir sköpuninni að flæða, lifir af ástríðu og er ekki alltaf að reyna að halda sjálfri sér innan einhverra þröngra marka.
En við vitum líka að það getur verið erfitt að hafa mikinn lífskraft án nægrar jarðtengingar eða uppbyggingar utan um hann. Frelsi er ekki það sama og að hafa engin mörk. Kannski er hið raunverulega frelsi fólgið í því að hafa nógu mikið pláss til þess að lifa, en líka nógu mikinn innri strúktúr eða jafnvægi til þess að halda utan um það sem vill verða til.
Ég held að ég sé að læra það núna að ég má vera tilfinningarík, ég má skapa, taka pláss, hafa gaman, vera spennt og ég má vilja, en líka hafa mörk, taka ígrundaðar ákvarðanir, hvíla mig, hugsa hlutina til enda og velja hvert ég beini orkunni minni.
Ég þarf ekki að velja á milli þessara hliða, vegna þess að það er kannski einmitt samspil þeirra sem gerir lífið lifandi. Ég hef nefnilega ekki bara verið að losa um eitthvað undanfarin ár, ég hef líka verið að opna fyrir eitthvað.
Núna þegar ég horfi til baka sé ég að meiri tilfinningar, meiri löngun, meiri orka og meiri þörf fyrir tjáningu voru kannski ekki vandamál sem þurfti að leysa. Kannski var lífið bara smám saman að taka upp meira pláss innra í mér.



Comments