Ég held að ég sé … glöð manneskja?

Ég er farin að velta því fyrir mér hvort ég sé hreinlega glöð manneskja.

Það er skrýtið að segja það, vegna þess að ég hef alls ekki skilgreint mig þannig. Ég hef frekar skilgreint mig sem manneskju sem hefur gengið í gegnum erfiðleika og vanlíðan. Það hefur verið stór hluti af sögunni minni og þar með líka stór hluti af því hvernig ég hef séð sjálfa mig.
En hvað gerist þegar maður hættir að vera alltaf að glíma við eitthvað?
Ég hef svo lengi verið upptekin af því að skilja sjálfa mig, vinna úr hlutum og komast yfir hitt og þetta að ég hef stundum gleymt að það er líka hægt að vera hér og hafa gaman.
Ég var t.d. í gærkvöldi að hugsa um að mig langaði ekki til þess að vera ein. Ekki vegna þess að ég gæti ekki verið ein – ég er fullkomlega fær um það – mig langaði bara ekki til þess.
Mér finnst nefnilega gaman að vera með fólki. Mér finnst gaman að tala, hlæja, spjalla um alls konar áhugaverða hluti og deila lífinu með öðrum. Ég er orðin meira vör við þann hluta af mér og það er svolítið nýtt.
Þetta er eitthvað sem hefur komið til mín eftir mikla sjálfsvinnu síðustu ár, en hluti af þeirri vinnu hefur falist í því að hætta að ýta erfiðum tilfinningum frá mér og leyfa þeim að koma upp. Að finna sorgina, reiðina, óttann og allt hitt sem ég hafði einhvern tíma lært að það væri betra að finna ekki.
Það hefur ekki alltaf verið sérstaklega skemmtilegt, en mér finnst eins og ég sé smám saman búin að vinna mig í gegnum margt af þessu. Ekki þannig að ég muni aldrei aftur verða leið, reið eða hrædd, enda er lífið ekki þannig, en það er minna sem þarf að koma upp og minna sem ég þarf að halda utan um.
Og þegar maður er ekki lengur með allan þennan þunga í fanginu, hvað er þá eftir?
Gleði. Friður. Forvitni. Spennan yfir því sem gæti gerst. Löngunin til að lifa.
Það er eiginlega það sem kemur mér mest á óvart. Ég hélt að þegar maður væri búinn að vinna úr öllu þessu erfiða tæki bara við eitthvað annað. En það þarf ekki að vera þannig. Það má líka bara njóta.
Ég hef svo lengi verið vön því að lífið væri eitthvað sem þyrfti að laga að ég er ekki alveg vön því að það megi líka bara vera skemmtilegt. Ég vil hitta fólk. Ég vil eiga góð samtöl. Ég vil hlæja. Ég vil verða spennt fyrir hlutum. Ég vil dansa, syngja, læra, skapa og sjá hvað gerist.
Ég vil bara vera hér.
Í gegnum allt þetta andlega ferðalag mitt hef ég líka komist að þeirri trú að í innsta kjarna okkar séum við gleði, friður og kærleikur. Það er eitthvað sem ég hef lengi talað um og hugsað um, en nú er ég farin að upplifa það á annan hátt.
Ég þarf ekki að búa til gleðina. Hún er þarna undir öllu hinu.
Það sem við köllum heilun snýst að stórum hluta um að leyfa því sem stendur í vegi fyrir gleðinni sem býr hið innra að koma upp og losna. Þegar það gerist er ekki endilega eitthvað nýtt sem tekur við, heldur einfaldlega lífið sjálft.
Og nú langar mig að lifa því.



Comments