top of page

Geðrækt á þorranum

  • Writer: Guðný Guðmundsdóttir
    Guðný Guðmundsdóttir
  • 6 days ago
  • 2 min read

Updated: 2 days ago

Við í Geðhjálp stöndum enn sem fyrr fyrir geðræktarátakinu G-vítamín á þorranum, vitundarvakningu sem snýr að mikilvægi þess að sinna geðrækt á myrkasta tíma ársins.

Ég verð að viðurkenna að þessi tími er oft erfiður fyrir mig. Jólin eru liðin, dagarnir stuttir og fátt virðist taka við nema kuldi og myrkur. Undanfarið hef ég helst viljað hafa það kósý: kúra undir teppi, drekka heitt te og borða eitthvað gott.


Jólafríið mitt var rólegt. Ég var með fjölskyldunni, hitti vini, púslaði og fór í stuttar gönguferðir í hverfinu. Samhliða því var ég þreytt, orkulaus og með hausverk, svo ég hvíldi mig. Og það var eiginlega það sem skipti mig mestu máli, að taka mér smá pásu.


Það má nefnilega gera ekki neitt.


Ég held að við eigum stundum erfitt með það að vera kyrr. Við lifum í menningu þar sem það að gera, framkvæma og sýna frá því fær mesta plássið. Svo þegar fríið er búið er spurt: Hvað gerðir þú?


Það er hins vegar svo lítið rými fyrir hæglæti; fyrir að vera, í stað þess að gera, þó svo að það að geta þolað rólegheit og hvíld sé eitt sterkasta merki um heilbrigt taugakerfi.


Í upphafi janúar finnst mörgum að þeir þurfi að setja sér áramótaheit og markmið fyrir árið framundan. Í fyrsta skipti á ævinni finn ég enga þörf fyrir það. Mér finnst mikilvægara að staldra við og vera.


Lífið heldur áfram, jafnvel þó ég geri engin sérstök plön. Það er í lagi að vera eins og ég er, hér og nú, ég þarf ekki að verða einhver önnur.


Fyrir mig eru G-vítamín þessa dagana meðal annars:


  • hvíld og tenging við náttúruna

  • að vera í líkamanum, finna mýkt og öryggi

  • hæglæti

  • að finna gleðina í litlu hlutunum

  • hlýja, jarðtenging og nærvera


Hver eru G-vítamínin þín?

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page