top of page

Heilunarmáttur hugleiðslu

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
Sep 6, 2014
2 min read

Updated: Oct 19, 2020


Hugleiðsla er hugtak sem mikið er fjallað um þessa dagana, af gefinni ástæðu. Hugleiðsla er einfaldlega ein af undirstöðum þess sem getur gert okkur að hamingjusömum einstaklingum, enda er hún oft og iðulega nefnd á listum yfir það sem getur látið okkur líða betur á sálinni.


Það býr engin dulúð á bak við hugleiðslu, því vísindin hafa sannað hversu gott hún gerir okkur. Hugleiðsla getur:

  • minnkað sársauka og eflt ónæmiskerfið

  • minnkað þunglyndi, kvíða, reiði og ringlun

  • örvað blóðflæði og róað öran hjartslátt

  • aukið ró, frið, og jafnvægi

  • aðstoðað við að sporna við hjartarsjúkdómum

  • aðstoðað við að stjórna hugsunum

  • aukið orku

  • minnkað stress

Það eru margar leiðir til þess að hugleiða, allt frá því að einbeita sér að andardrættinum, kveikja á kerti og fylgjast með loganum, eða endurtaka ákveðinn frasa (eða möntru eins og það er kallað), annað hvort með tónlist undir eða í kyrrð. Það fer eftir hverjum og einum hvaða aðferð hentar best en hugleiðslu er hægt að stunda einn eða í hóp.


Fyrir þau sem eru óvön og jafnvel óörugg er góð hugmynd að skrá sig á hugleiðslunámskeið og eiga þar kyrrðarstund. Það er þó ekkert sem segir að þú getir ekki æft þig heima sjálfur.


Hugleiðsla er nefnilega ekki flókin, þó hún virðist kannski vera það í byrjun. Í sinni einföldustu mynd snýst hugleiðsla um það að vera meðvitaður um hugsanir okkar, að leyfa hugsununum að flæða, án þess að við verðum pirruð eða finnast við vera ómöguleg fyrir það að geta ekki kyrrt hugann.


Hugleiðsla snýst alls ekki um að hætta að hugsa – það myndi reynast okkur ómögulegt. En við getum tekið eftir hugsunum þegar þær koma, viðurkennt þær, og leyft þeim svo að halda sína leið. Að hugleiða er einfaldlega að leiða hugann, eins og nafnið gefur til kynna.


Ein af bestu útskýringunum á hugleiðslu sem ég hef séð er að finna í eftirfarandi myndbandi. Þar kemur einmitt fram að hugur okkar er virkur en að hugleiðsla gerir okkur kleift að temja hann með því að gefa honum hlutverk. Við getum til að mynda gefið huganum það verkefni að fylgjast með andardrætttinum, fara með möntru, fylgjast með kertaloga og svo framvegis.


Það er einmitt það sem gerir okkur það mögulegt að lifa þann tíma algerlega í þessu eftirsótta „nú-i“. Þar með gerum við okkur grein fyrir því að við erum aldrei neins staðar nema akkúrat hér, hér og nú, því ekki getum við farið aftur til fortíðar, né til framtíðar. Að eyða tíma okkar og hugsunum þar er því frekar tilgangslaust.

Þú getur ekki breytt fortíðinni, sama hvernig þú reynir, svo þú getur alveg eins hætt að skamma sjálfan þig fyrir það sem þú gerðir þá, eða óska þess að hlutirnir hefðu verið öðruvísi. Framtíðin er óráðin. Það þýðir að þó að þú gerir að sjálfsögðu plön, þá geta hlutirnir alltaf breyst. Því er gott að vera opinn fyrir því sem kemur, án fyrirfram ákveðinna væntinga.


Framtíðin kemur, hvort sem þú hefur áhyggjur af henni eða ekki – áhyggjur eru því algjörlega tilgangslausar, og gera sjaldnast nokkuð einasta gagn. Það eina sem þú getur stjórnað er núið, og það er það sem „mindfulness“, að vera meðvitaður um andartakið, snýst um.



2 Comments


billy24barne.s7.8.3.5
Aug 16

Ngày nào mình cũng ngó qua mấy kênh soi cầu XSMB/MB trước giờ quay để bắt nhịp, chứ sát giờ mới xem thì dễ cuống. Mình hay ghép dự đoán XSMB với thống kê lô gan và lô xiên để nhìn ra hướng đi của dàn số, đỡ đoán theo cảm giác. Trong nhóm cũng có người khuyên nên quay thử rồi đối chiếu lại dữ liệu cũ để xem tần suất có hợp lý không, nhất là khi kết hợp thêm vài công cụ kiểu quay thử XSMB hay Rồng Bạch Kim. https://soicauxsmb.pro/ mình chỉ lướt để so sánh thêm thôi, không bao giờ tin mỗi một nguồn. Nói chung dự đoán miền Bắc vẫn phải cân giữa cầu…

Like

billy24barne.s7.8.3.5
Aug 11

Mình mua vé số chủ yếu để thư giãn, kiểu xem kết quả cho vui chứ không đặt nặng chuyện đổi đời. Trước đây nghe bạn bè truyền tai mấy “cầu” này nọ, mình cũng thử theo dõi cho biết, rồi lâu lâu thấy có vài dạng lặp lại nên chú ý hơn chút. Mình hay đọc mấy bài nhận định rồi ghi lại vài dòng, sau đó mở ra đối chiếu xem có phải mình đang tự hợp lý hóa không. https://soicauxsmb.io/lo-khung-bach-thu-3-ngay.html đôi khi giúp mình có thêm chủ đề tám chuyện, nhưng mình vẫn tự nhắc là trúng thì vui, trượt cũng bình thường, đừng tin quá đà. Nói chung mình ưu tiên giữ tâm lý và chi…

Like
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page