Hvað er að finna?

Um daginn kom ég með hugmynd að erindi sem myndi fjalla um hvernig það er raunverulega að sitja með tilfinningum sínum og vinna úr vanlíðan. Í umræðunni kom fram að það væri hægt að stilla upp listaverki sem manneskja hafði skapað út frá eigin þjáningu.

Það var eitthvað við það sem truflaði mig við það, en ég áttaði mig ekki alveg á hvað það var fyrr en seinna. Svo kom það til mín. Það var þessi hugmynd um að maður mætti ekki bara finna, vegna þess að það þyrfti að koma eitthvað út úr því, líkt og listaverk, ljóð, bók eða einhvers konar sköpun sem sýndi að þjáningin hefði orðið að einhverju.
En hvað ef hún þarf þess ekki? Hvað ef manni má bara stundum líða illa?
Mér var líka hugsað til fólks sem hefur ekki tíma eða orku til að skapa vegna þess að það er upptekið í vinnu, við að ala upp börn, hugsa um foreldra eða sinna einhverjum sem þurfa á þeim að halda.
Hvað með manneskjuna sem hefur gengið í gegnum erfiðleika en skrifaði aldrei ljóð um þá – þýðir það að þjáning hennar til einskis?
Mér finnst við almennt vera með mjög furðulegar hugmyndir um tilfinningar. Við erum hrædd við þær, reynum að stjórna þeim, ýta þeim frá okkur eða losna við þær, en um leið erum við líka alltaf að reyna að gera eitthvað úr þeim. Það er eins og tilfinningin ein og sér megi ekki bara vera til.
Það rímar við upplifanir mínar frá því að ég var barn, en þá fannst mér ekki vera mikið pláss fyrir tilfinningar mínar. Það var ekki endilega vel tekið á móti þeim og því lærði ég að ýta þeim niður. En þær hurfu ekki. Þær biðu.
Það sem ég er að læra núna er að ég þarf ekki lengur að vera hrædd við þær. Ég get fundið reiði án þess að taka hana út á einhverjum. Ég get fundið sorg án þess að þurfa að gera hana að sögu. Ég get fundið ótta án þess að láta hann stjórna öllum ákvörðunum mínum.
Heilt yfir er ég farin að upplifa tilfinningar mínar öðruvísi. Þær koma og þær fara. Þær hreyfast í gegnum mig. Stundum er ég glöð, stundum sorgmædd, stundum reið, stundum hrædd. Stundum fæ ég einhverja undarlega löngun til að dansa um stofuna og stundum langar mig bara að vera ein.
Ég þarf ekki að gera neitt við þetta allt saman. Ég þarf ekki að taka allar tilfinningar mínar alvarlega, en ég þarf heldur ekki að hunsa þær. Kannski er það þar sem við ruglumst svo oft.
Við höldum að ef við finnum eitthvað þurfi það að þýða eitthvað stórt. Ef ég er reið, þá hlýtur einhver að hafa gert eitthvað rangt. Ef ég er hrædd, þá hlýtur eitthvað að vera hættulegt. Ef ég er sorgmædd, þá hlýtur eitthvað að vera að.
En tilfinning er ekki endilega staðreynd. Hún er einfaldlega það sem ég er að upplifa núna og hún má breytast. Tilfinning er heldur ekki skipun. Ég þarf ekki að framkvæma hana. Ég þarf ekki einu sinni alltaf að skilja hana. Ég get bara fundið hana. Og fyrir mér er eitthvað mjög lifandi við það.
Ég hugsa stundum um tilfinningar sem lífskraft. Eitthvað sem vill hreyfast, eitthvað sem vill fá að tjá sig. Hlátur, grátur, dans, söngur, reiði, ást, sorg, löngun, forvitni. Lífið í okkur er ekki alltaf rólegt og fallegt. Það er líka fullt af hreyfingu.
Kannski er vandamálið ekki að við finnum of mikið, kannski höfum við einfaldlega gleymt hvernig það er að finna. Að leyfa tilfinningu að koma, leyfa henni að vera og leyfa henni svo að fara, án þess að þurfa að gera hana að einhverju.
Það er kannski það sem það er, að vera lifandi.



Comments