Tebolli – lausnin við vandamálum lífsins?
- Guðný Guðmundsdóttir

- Jan 8
- 2 min read
Updated: 7 days ago
Ég hef verið á miklu innra ferðalagi síðustu mánuði. Það er margt sem ég hef uppgötvað en mér hefur reynst erfitt að setjast niður og koma þeim í orð. Sumt þarf maður einfaldlega að melta.

Ein sú óvæntasta breyting sem ég hef gert, og jafnframt sú sem hefur haft hvað mest áhrif, er einföld: ég byrjaði að sötra te og heitt vatn allan liðlangan daginn.
Ég var búin að heyra af því áður að ég hefði gott af því. Fyrir meira en ári síðan sagði ayurveda-sérfræðingur mér að drekka heitan vökva. Nuddari sagði mér að ég þyrfti meiri hita, t.d. með því að fara í gufu, í þeim tilgangi að „kveikja eldinn“ í mér.
Þessi skilaboð komu úr mismunandi áttum en ég var ekki alveg tilbúin að hlusta. Það er að segja ekki fyrr en í nóvember síðastliðinn þegar ég var allt í einu tilbúin til þess að prófa og komst að því að líkami minn virðist þurfa á hita að halda til þess að starfa eins og honum er ætlað.
Best hefði verið fyrir mig að sleppa koffíni líka, en ég hélt einum kaffibolla með mjólk á morgnana til þess að gera breytinguna auðveldari. Fljótlega fann ég að ég þurfti hann varla – mig langaði einfaldlega meira í te. Á þriðja degi fann ég að hárið á mér var mýkra. Smátt og smátt, eftir því sem dagarnir og vikurnar liðu varð orkan jafnari, löngunin í bakkelsi eða sætindi minni og samband mitt við mat og hungur varð skýrara.
Þetta er ekki nálgun sem hentar öllum og hún á ekki heldur að vera það. Líkamar okkar eru ólíkir, þarfir okkar ólíkar. Það sem skiptir máli er að finna hvað hver og einn þarf. Fyrir mig reyndist það vera meiri hlýja.
Þegar ég fór að kafa nánar í ayurveda, kínversk fræði og einnig nútímavísindi fór eitt að skýrast: meltingin er ekki bara melting. Hún tengist taugakerfinu, blóðrás, sogæðakerfi, hormónum, húðinni og jafnvel tilfinningalífinu.
Þegar meltingin er hæg, köld eða undir álagi þá breiðast áhrifin út. Þreyta, kuldi í útlimum, löngun, uppþemba, viðkvæmni fyrir mat, húðþurrkur, þyngdarbreytingar og jafnvel tilfinningaleg þyngd geta allt verið hluti af sama ójafnvæginu.
Hlýja breytir þessu vegna þess að hún virkjar kjarnann. Heitur matur og volgir drykkir:
auka blóðflæði
virkja meltingarensím
bæta frásog næringarefna
mýkja vefi
styðja sogæðaflæði
róa taugakerfið og koma líkamanum í það ástand sem er kallað á ensku rest and digest (hvíld og melting)
Það sem ég hef uppgötvað er ekki galdur, heldur hefur líkami minn loksins fengið það sem hann hefur verið að biðja um, enda hefur mig alltaf langað meira í heitan mat frekar en kalda safa og salöt.
Samhliða þessari auknu hlýju hefur eitthvað breyst. Ég finn fyrir meiri ró, minni pressu og minni þörf fyrir að vera alltaf að laga mig eða bæta mig. Ekki vegna þess að allt sé fullkomið, heldur vegna þess að mér líður betur í eigin líkama.
Mögulega er þetta það sem gerist þegar líkaminn fær það sem hann þarf, það sem hann er búinn að vera að biðja um. Kannski leysir tebolli ekki öll vandamál lífsins en kannski getur hann komið manni í betra jafnvægi.



Comments