top of page

Þegar við lærum að tengjast með því að verjast

Writer: Guðný Guðmundsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir
Sep 3
2 min read

Í síðasta pistli skrifaði ég um það hvernig það sem við upplifum í æsku getur orðið svo kunnuglegt að við hættum að sjá það sem mynstur. Við lærum ákveðnar leiðir til að takast á við lífið og með tímanum geta þær farið að virðast einfaldlega vera hluti af því hver við erum.



Þetta á ekki síst við um náin sambönd. Við lærum nefnilega ekki bara hvernig við eigum að haga okkur, við lærum líka oft án þess að gera okkur grein fyrir því, hvað nánd þýðir, hverju við getum búist við frá öðru fólki og hvað við þurfum að gera til að halda tengslunum.


Sum okkar læra að fylgjast mjög vel með öðrum með því að spyrja spurninga líkt og; Hvernig líður hinum? Er eitthvað að? Er hann fjarlægur? Er allt í lagi á milli okkar? Hef ég gert eitthvað rangt?


Þegar óvissa kemur upp getur þá komið sterk þörf fyrir að tala um hlutina, fá svör, fá staðfestingu eða reyna að laga það sem virðist vera að. Á meðan aðrir læra eitthvað allt annað, en þau læra að treysta fyrst og fremst á sjálf sig.


Þau læra að það sé betra að þurfa ekki of mikið, að tilfinningar séu ekki endilega eitthvað sem maður deilir með öðrum. Að vandamál leysist best með því að taka skref til baka, halda áfram með sitt eða bíða þar til hlutirnir ganga yfir.


Þegar eitthvað verður erfitt í sambandi geta þau því brugðist við með því að draga sig í hlé, loka á tilfinningarnar eða vilja fá meira rými. Hvorugt þessara viðbragða þarf að vera meðvitað og hvorugt þýðir endilega að manneskjan sé að reyna að meiða hinn. Það getur einfaldlega verið það sem hún hefur lært.


Vandinn getur komið upp þegar þessar ólíku leiðir til að skapa öryggi mætast í sambandi. Sá sem óttast fjarlægð leitar nær, á meðan sá sem upplifir nándina eða tilfinningalega pressuna sem óþægilega leitar fjær.


Þá getur myndast hringrás sem verður sífellt sterkari. Því meira sem annar leitar eftir tengingu, því meira getur hinn dregið sig undan. Því meira sem hinn dregur sig undan, því óöruggari verður sá fyrri og því sterkari verður þörfin fyrir að ná aftur tengingu.


Og þannig geta tveir einstaklingar, sem báðir vilja í rauninni finna fyrir öryggi, óvart farið að gera einmitt það sem gerir hinn óöruggari. Annar hugsar kannski: Af hverju vill hann ekki tala við mig? Hinn hugsar: Af hverju þarf hún alltaf að tala um þetta?


Annar upplifir fjarlægðina sem höfnun, á meðan hinn upplifir leitina að tengingu sem þrýsting, sem verður til þess að báðir geta farið að verja sig.


Ég hef margt og meira um þessi málefni að segja, en ég ítreka að allt það sem ég skrifa um hér byggi ég á minni eigin reynslu og þeirri þekkingu sem ég hef viðað að mér, til þess að skilja sjálfa mig sem og aðra.


Ef þetta vekur áhuga þinn, þá býð ég þér að halda áfram að fylgjast með þessum skrifum sem munu koma hér inn á næstu vikum og mánuðum.

Comments


  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon
  • Pinterest
  • Black LinkedIn Icon

©2019 Guðný Guðmundsdóttir

bottom of page